NESK
NESK er sögubók
eftir Jón Knút Ásmundsson. Bókin
samanstendur af lengri og styttri sögum úr lífi
höfundar þar sem farið er út um víðan
völl og aftur og fram í tíma; sagt frá
uppvexti höfundar austur á fjörðum, piparsveinalífi
í úthverfi á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og stúdentalífi í enskum háskólabæ.
Í NESK eru sagðar sögur úr sveit og borg,
en rauði þráður bókarinnar liggur
um sjávarþorpið Neskaupstað.
Hér er skrifað um skrýtnar skrúfur,
skondnar sitjúasjónir, tónlist, stelpur,
kvöl og stríð blaðamannsins og margt fleira.
Sögurnar eiga allflestar uppruna sinn að rekja til
bloggskrifa höfundar
síðustu fimm árin. NESK er fjölbreytt,
litrík og skemmtileg bók og segir okkur kannski
eitthvað um lífið í litlum bæ úti
á landi.
Jón Knútur Ásmundsson
er fæddur og sæmilega uppalinn Norðfirðingur.
Hann byrjaði snemma að segja sögur og lærði
ungur að hafa það eftir sem skemmtilegar hljómar.
Það leiddi hann út í blaðamennsku
og í ritstjórastól héraðsfréttablaðs
í heimabyggð og með sér úr því
ferðalagi hefur hann nokkrar sögur í NESK. Jón
Knútur bloggar á vefnum Rauðhausar.com
og vinnur nú að sinni næstu bók sem
merkilegt nokk fjallar um þorp eitt austur á fjörðum.
Kristinn Pétursson hefur hannað bókina og
ritstýrt, en Mínerva
- miðlun & útgáfa gefur út.
> Sjá
vef útgáfunnar |