NESK er sögubók Jóns Knúts
Ásmundssonar. Og hvað er nú sögubók?
- Jú, bók sem inniheldur sögur og í
þessu tilfelli uppdiktaðar sögur sem byggja á
lífi höfundar.
Nesk hefur að geyma tuttugu og fimm sögur - stuttar
og lengri - hvar sögumaður segir frá í
fyrstu persónu; segir frá æskuárum
sínum á Norðfirði, hvernig það
var að vera sumpartinn öðruvísi og með
önnur áhugamál en krökkum var gert að
hafa í litlum og stundum einsleitum bæ.

Og það er komið víðar við í
lífi höfundar, enda hoppa sögurnar fram og
aftur í tíma: sagt frá raunum héraðsblaðamanns
og svo ritstjóra, einmanalegu lífi í úthverfi
á Stór-Reykjavíkursvæðinu, komið
við á geðdeild og í enskum háskólabæ
hvar bjórinn er svo góður að til vandræða
horfir.
NESK er að stofninum til n.k. bloggbók þar
sem meginhluti efnisins kemur úr bloggi höfundar
síðustu fjögur árin eða svo. Bloggsögurnar
hafa þó verið slípaðar til fyrir
pappírinn og fleirum bætt við.
|