FORSÍÐA VIÐTÖL PODCAST VÍDJÓ NESK KAUPA BÓK MÍNERVA - miðlun & útgáfa
   
> Útsölustaðir    
 
 
Hinn landskunni bókaormur og blaðamaður Kolla Bergþórs hitti höfund NESK á dögunum og átti við hann tal um bókina, heimahagana, verðlag í Bónus og sóðaskapinn á Egilsstöðum. Einnig kom blár sloppur við sögu og kalt kaffi. > Viðtalið hér
 
 
 
NESK er sögubók Jóns Knúts Ásmundssonar. Og hvað er nú „sögubók“? - Jú, bók sem inniheldur sögur og í þessu tilfelli uppdiktaðar sögur sem byggja á lífi höfundar.

Nesk hefur að geyma tuttugu og fimm sögur - stuttar og lengri - hvar sögumaður segir frá í fyrstu persónu; segir frá æskuárum sínum á Norðfirði, hvernig það var að vera sumpartinn öðruvísi og með önnur áhugamál en krökkum var gert að hafa í litlum og stundum einsleitum bæ.

Og það er komið víðar við í lífi höfundar, enda hoppa sögurnar fram og aftur í tíma: sagt frá raunum héraðsblaðamanns og svo ritstjóra, einmanalegu lífi í úthverfi á Stór-Reykjavíkursvæðinu, komið við á geðdeild og í enskum háskólabæ hvar bjórinn er svo góður að til vandræða horfir.

NESK er að stofninum til n.k. bloggbók þar sem meginhluti efnisins kemur úr bloggi höfundar síðustu fjögur árin eða svo. Bloggsögurnar hafa þó verið slípaðar til fyrir pappírinn og fleirum bætt við.
 
  JKÁBLOGG   MÍNERVAÚTGÁFA   GÚRKATV   RAUÐHAUSAR ÚTSÖLUSTAÐIR    
 
 
TÓNLISTINÍBÓKINNI Hvað eiga lögin Ghost Town með The Specials, Heart Shaped World með Chris Isaak, Blackbird með Bítlunum, Houses in Motion með Talking Heads og Daphné með Django Reinhart sameiginlegt? Ja, það er ekki að vita nema lesa bókina NESK.